OK VEFVERSLUN

Velkomin á nýja vefverslun OK!

Við erum nýkomin í loftið og erum enn að vinna í síðunni.

Endilega skoðið ykkur um og verslið. Allar ábendingar eru vel þegnar!



Jabra

Jabra á sér langa sögu og hefur framleitt höfutól í um 150 ár. Hönnun byggir á dönskum grunni en áhersla er lögð á sjálfbærni við framleiðslu og notkun umhverfisvænna efna hvort sem er í pakkningar eða vörurnar sjálfar. Mikili áhersla er einnig lögð á fallega hönnun. Vörulína Jabra er einstaklega breið og byggir á bæði þráðlausum sem og snúrutengdum höfuðtólum. Áhersla er lögð á margbreytilegar lausnir fyrir blandaða vinnu þannig að höfuðtólð henti sem best hvort sem unnið er á skrifstofunni, heima eða annarsstaðar. Fjölbreyttar lausnir eru eins í boði fyrir mismunandi tæki, og því hægt að finna lausnir til að tengja hvort sem er símtækjum, tölvum eða farsímum.

Kaupa núna

HP Elite Dragonfly G4

HP Dragonfly, Fyrsta ferðavél heimsins úr sjávarplasti.

Skoða

HP Poly

Talið er að rúmlega 50% fólks, eða fleiri, muni vinna í fjarvinnu árið 2030. Nú þegar eru fjölmargir sem vinna blandaða vinnu (e. Hybrid Work) og eru ýmist á skrifstofunni, heima, eða jafnvel í verkefnavinnu á kaffihúsum. Þess vegna skiptir máli að hafa samþætt tæki sem geta tengt sig við mismunandi lausnir að hverju sinni. HP Poly sérhæfir sig í mynd- og hljóðlausnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga og tryggir að það geti unnið óháð stað og stund. HP Poly býr yfir fjarfundalausnum, vinnuheyrnartólum af ýmsum toga og fundahátölurum sem eru margverðlaunaðir.

Sjá vörur

Fyrirtækið

OK er traustur og góður samstarfsaðili sem hefur viðskiptavininn ávallt í fyrirrúmi. Reynsla og þekking starfsmanna tryggir bestu ráðgjöf og þjónustu sem völ er á. OK á náið samstarf við fjölmörg framsækin og öflug erlend upplýsingafyrirtæki og hefur m.a. átt í nánu samstarfi við mörg þeirra um langt skeið eins og t.d. HP og HPE, Microsoft, Cisco, Red Hat og mörg fleiri.

Fyrirtækið
Með því að smella á 'Samþykkja allt' samþykkir þú að við megum safna upplýsingum um þig í ýmsum tilgangi, þar á meðal: Tölfræði, Virkni og Markaðssetning