Endurnýjað - HP Elitebook 840 G7 16GB/256GB
HP Certified Refurbished
Öflug HP fartölva á hagstæðara verði
Yfirfarin, prófuð og HP-vottuð.
HP Certified Refurbished fartölvur keyra Windows 11 Pro og eru fáanlegar með allt að þriggja ára ábyrgð. Með því að velja endurnýjaða HP fartölvu velur þú jafnframt umhverfisvænni kost.
HP EliteBook 840 er létt og öflug fartölva sem hentar vel fyrir vinnu og nám. Hagkvæmur og umhverfisvænn kostur sem býr yfir traustum afköstum og vandaðri hönnun. HP tölvur fara í gegnum strangt vottunarferli. Hægt er að stækka minni á þessari tölvu úr 16 GB í 32 GB.
Þessi tölva er með 3 ára ábyrgð.
Skráðu þig inn til þess að sjá þín kjör
Eiginleikar
- Framleiðandi
- HP
- Litur
- Silfur
Vörulýsing
Hægt er að stækka minni á þessari fartölvu. Skoða.
Endurnýttur búnaður (HP Certified Refurbished) er samkvæmt ströngum gæðastöðlum HP.
- Ítarleg greining, flokkun og ástandsskoðun.
- Íhlutum skipt út eða þeir uppfærðir eftir þörfum, gögn fjarlægð og tæki enduruppsett.
- Að lokinni viðgerð og endurnýjun fara tækin í lokaprófanir þar sem bæði virkni og útlit eru staðfest.
- Að því loknu fer fram gæðaskoðun og í vandaðar pakkningar.
- Að endingu eru tækin fullbúin til afhendingar eða sendingar.
- HP Certified Refurbished PC búnaður skilar marktækum sparnaði án þess að fórna gæðum, afköstum eða öryggi.
HP EliteBook 840 er vönduð og öflug fartölva úr atvinnulínu HP sem hentar einstaklega vel fyrir skrifstofuvinnu, fjarnám og daglega notkun. Þessi endurnýjaða (refurbished) útgáfa hefur verið yfirfarin og prófuð til að tryggja fulla virkni, sem gerir hana að hagkvæmum og áreiðanlegum valkosti fyrir þá sem vilja góða vél á betra verði.
Hönnun vélarinnar er stílhrein og fagleg, með léttu en sterku ytra byrði sem gerir hana þægilega hvort sem er á skrifstofu eða á ferðinni. EliteBook línan er þekkt fyrir gæði, öryggi og áreiðanleika, sem gerir þessa tölvu að góðum vinnufélaga til lengri tíma.
Vélin býður upp á góð afköst fyrir helstu daglegu verkefni eins og tölvupóst, vefnotkun, Microsoft Office, Teams og önnur skrifstofuforrit. Skjárinn er skýr og þægilegur til lengri vinnu og lyklaborðið hannað með notendaupplifun í huga.
Með því að velja endurnýjaða tölvu ertu ekki aðeins að spara kostnað heldur einnig að leggja þitt af mörkum til umhverfisins með því að lengja líftíma rafeindabúnaðar og draga úr sóun.
Þessi tölva er frábær valkostur fyrir:
- Námsmenn: Öflug, sterkbyggð og áreiðanleg fartölva sem ræður auðveldlega við ritgerðasmíð, glósuforrit, stórar PDF-skrár og marga opna vafraflipa á sama tíma.
- Létta og almenna skrifstofuvinnu: Fullkomin í MS Office (Word, Excel, Outlook), tölvupóstsamskipti, bókhaldsforrit og fjarfundi á Teams eða Zoom.
- Almenna heimilisnotkun.
3 ára ábyrgð.
„HP Certified Refurbished tölvur hafa reynst okkur frábærlega — áreiðanlegur búnaður, lægri kostnaður og minni umhverfisáhrif."
Fernanda Menezes Caetano IT Project Manager hjá Hertz Íslandi.
- Vörutegund: Fartölva
- Litur: Silfurlitur
- Skjástærð: 14” (35,6 cm)
- Skjáupplausn: 1920 × 1080 (Full HD)
- Snertiskjár: Nei
- Örgjörvi: Intel® Core™ i5-10310U (10. kynslóð)
- Örgjörvakjarnar: 4
- Örgjörvaþræðir: 8
- Grunntíðni örgjörva: 1,7 GHz
- Hámarkstíðni (Turbo Boost): 4,4 GHz
- Skyndiminni: 6 MB Intel® Smart Cache
- Vinnsluminni: 16 GB DDR4-SDRAM
- Minnisgerð: SO-DIMM
- Geymsla: 256 GB SSD (M.2 PCIe NVMe)
- Fjöldi SSD diska: 1
- Innbyggt skjákort: Intel® UHD Graphics
- Sérstakt skjákort: Nei
- Frammyndavél: Já
- Wi-Fi: Wi-Fi 6 (802.11ax)
- Bluetooth: Já
- Farsímanetstenging: Nei
- USB-A tengi: 2 × USB 3.2 Gen 1
- USB-C tengi: 2 × USB 3.2 Gen 1 Type-C
- HDMI: 1 × HDMI 1.4
- Heyrnartóla-/hljóðnematengi: Já (combo)
- SmartCard rauf: Nei
- Bendibúnaður: Clickpad
- Talnaborð: Nei
- Baklýst lyklaborð: Nei
- Lyklaborð: Norrænt
- Stýrikerfi: Windows 11 Pro (64-bita)
- Trusted Platform Module (TPM): Já
- Fingrafaralesari: Nei
- Smartkortalesari: Nei
- Formstuðull: Samlokuhönnun
- Endurnýjuð vara: Já (HP Premium+)
- Þyngd: 1,36 kg
- Mál (B × D × H): 323,6 × 214,7 × 19,1 mm