HP ProDesk 4 Mini G1i Intel Core Ultra 5 225T 32/512 (ML)
Skráðu þig inn til þess að sjá þín kjör
Eiginleikar
- Framleiðandi
- HP
- Litur
- Svartur
Vörulýsing
HP ProDesk 4 Mini G1i er nett og öflug borðtölva sem hentar einstaklega vel fyrir skrifstofur, móttökur, fundarherbergi og heimaskrifstofur þar sem pláss skiptir máli. Þrátt fyrir smáa stærð skilar hún miklum afköstum og ræður auðveldlega við daglega vinnu, fjölverkavinnslu og nútímaleg skrifstofuforrit.
Tölvan er búin Intel Core Ultra 5 225T örgjörva sem sameinar góða afkastagetu og hagkvæma orkunýtingu. Með 32GB vinnsluminni og hraðvirkum 512GB SSD diski færðu lipra notendaupplifun, hraða ræsingu og góða afköst jafnvel þegar mörg verkefni eru í gangi samtímis.
ProDesk Mini línan er sérstaklega vinsæl þar sem hún tekur lítið pláss á skrifborði og auðvelt er að fela tölvuna aftan við skjá eða undir borði. Innbyggt Wi-Fi gerir einnig uppsetningu einfaldari án þess að þurfa nettengingu með snúru.
HP leggur mikla áherslu á öryggi og áreiðanleika í ProDesk vörulínunni sem gerir þessa vél að frábærum valkosti fyrir fyrirtæki og fagfólk.
Tækniupplýsingar
- Tegund: Mini borðtölva
- Örgjörvi: Intel Core Ultra 5 225T
- Vinnsluminni: 32GB DDR5
- Geymsla: 512GB NVMe SSD
- Þráðlaus tenging: Wi-Fi og Bluetooth
- Nett stærð sem sparar pláss
- Tengi: USB, HDMI og DisplayPort
- Öryggi: TPM öryggiskubbur
- Stýrikerfi: Windows 11 Pro
- Hentar fyrir skrifstofur og fyrirtæki