Optoma ZU820T 8800lum WUXGA (1920x1200) Laser varpi
Ofurbjartur faglegur laser skjávarpi með 8.800 lúmena birtu, mótorstýrðri stillingu og miklum sveigjanleika fyrir stærri og krefjandi uppsetningar.
Skráðu þig inn til þess að sjá þín kjör
Eiginleikar
- Framleiðandi
- Optoma
- Litur
- Svartur
- Ending á laser allt að
- 30.000 klst
- Mynd hlutföll
- 16:9
- Skerpa
- 300.000 - 2.000.000 dynamic
- Vörpun fjarlægð
- 1 - 10 metrar
Vörulýsing
Optoma ZU820T er afkastamikill laser skjávarpi sem hentar vel í stærri rými og krefjandi uppsetningar. Með 8.800 lúmena birtu og WUXGA upplausn skilar hann skýrri og bjartari mynd, jafnvel í vel upplýstum aðstæðum.
Laser ljósgjafinn tryggir allt að 30.000 klukkustunda endingartíma án viðhalds, sem gerir hann hagkvæman og áreiðanlegan til lengri tíma. Tækið er hannað fyrir stöðuga notkun og býður upp á rykvörn sem hjálpar til við að halda frammistöðu stöðugri.
ZU820T er búinn mótorstýrðu zoomi, fókus og lens shift sem einfaldar uppsetningu og gerir auðvelt að aðlaga hann að mismunandi rýmum. Þetta gerir hann sérstaklega hentugan fyrir sýningar, fundarsali og aðrar faglegar uppsetningar þar sem sveigjanleiki og myndgæði skipta máli.