OPTOMA 75" gagnvirkur snertiskjár 5-series IFPD

H1F0C0OBW101
Gagnvirkir skjáir frá Optoma eru því gríðarlega öflugir í að efla þátttöku, samstarf og samskipti þeirra sem vinna með slíka skjái, hvort sem það er í kennslu eða í fyrirtækjum. 

OPTOMA 75" Interactive 5753RK 5-series IFPD 
643.529 kr InStock
518.975 kr Án vsk
Information Icon
Auðkenndu þig
Skráðu þig inn til þess að sjá þín kjör

Eiginleikar

Framleiðandi
Optoma
Litur
Svartur

Vörulýsing

Bylting fyrir skólastarf og fundi. 

Optoma gagnvirkir skjáir eru hannaðir fyrir þarfir skóla og fyrirtæki; sem vilja efla samvinnu og fjarlægja þær hindranir sem fólk stendur frammi fyrir í samvinnuverkefnum.  

Í skólastarfi kemur gagnvirki skjárinn oft á tíðum í veg fyrir hefðbundna skjái eða skjávarpa. Gagnvirkir skjáir eru því gríðarlega öflugir í að efla þátttöku, samstarf og samskipti þeirra sem vinna með slíka skjái, hvort sem það er í kennslu, í fyrirtækjum eða félagasamtökum.

Kosturinn við Optoma gagnvirku skjáina er að þeir henta öllum aldursflokkum í skóla eða ólíkum hópum fullorðinna sem inna af hendi samvinnuverkefni. 

 

„Gagnvirki skjárinn frá Optoma leysir af hólmi krítar- og tússtöfluna, skjávarpa, landakort og sýningartjaldið. Auk þess losnuðum við allt snúrufarganið. Algjör bylting í skólastarfi.“

-Lára Bergljót Jónsdóttir, skólastjóri, Reykholtsskóla Bláskógabyggð.

 

  • Glampafríir skjáir
  • Hannaðir fyrir mikla notkun (24/7)
  • Fáanlegir í mismunandi stærðum
  • Möguleiki á fjölbreyttum aukahlutum
  • Hægt að festa á vegg eða hjólastand
  • Víðtæk 3ja ára ábyrgð
  • Einfaldur aðgangur að töflu sem hægt er að skrifa og teikna (Whiteboard).
  • Sérstakur penni fylgir, sem gerir notenum kleift að hefja kennslu eða fundi á nokkrum sekúndum. Penninn sýnir um leið hvað skrifað er á skjáinn í 4K upplausn. Hægt að velja liti, skrifa athugasemdir á verkefni og línurit. Skapar einstakt flæði á fundum og í kennslustundum.

Sérlega einfalt að tengja við Google Classroom. Kennarar geta unnið að verkefnum heiman frá og efnið færist um leið yfir á skjáinn. Tengdu við hvaða tæki sem er. Sendu út þráðlaust, deildu eða streymdu efni um skáinn með "Display Share". Speglaðu efni, myndir og myndböndum úr síma eða tölvu yfir á skjáinn.
Fjarstýrðu IFPD-skjölum, skjávörpum, LED skjám og öðrum búnaði. Tímasettu tilkynningar, verkefni eða stillingar. Optoma's Management Suite (OMS)™ lausnin er fullkomin til að stýra, óháð staðsetningu, fyrir samþættingu á öllum Optoma tækjum, eða hvaða vörumerkjum sem er í gegnum PJ-Link.
 

Sjá mismunandi stærðir á gagnvirkum Optoma skjám: 
Gagnvirkur skjár fyrir kennslu. 
Gagnvirkur skjár fyrir fyrirtæki. 

Sjá mismunandi stærðir á gagnvirkum Optoma skjám. 

Notkunarleiðbeiningar.

Vöruheiti: OPTOMA 75" Interactive 5753RK 5-series IFPD.

Með því að smella á 'Samþykkja allt' samþykkir þú að við megum safna upplýsingum um þig í ýmsum tilgangi, þar á meðal: Tölfræði, Virkni og Markaðssetning