Endurnýjað - HP Elitebook 840 - 16GB/256GB

4J5R-109326-08-B
Endurnýjuð (refurbished)

Endurnýjuð HP EliteBook 840 er létt og öflug fartölva sem hentar vel fyrir vinnu og nám. Hagkvæmur og umhverfisvænn kostur með traustum afköstum og vandaðri hönnun.
Þitt verð
125.989 kr InStock
101.604 kr Án vsk
Information Icon
Auðkenndu þig
Skráðu þig inn til þess að sjá þín kjör

Eiginleikar

Ábyrgð á rafhlöðu
1 ár
Minni
16GB
Spjaldtölvu möguleiki
Nei
Stærð á hörðum disk
256 GB
Stýrikerfi
Windows 11 Pro
Vörusería
800
Þráðlaust net
Framleiðandi
HP
Litur
Silfur

Vörulýsing

Endurnýttur búnaður (HP Certified Refurbished) er samkvæmt ströngum gæðastöðlum HP​. 

  • Ítarleg greining, flokkun og ástandsskoðun.
  • Íhlutum skipt út eða þeir uppfærðir eftir þörfum, gögn fjarlægð og tæki enduruppsett. ​
  • Að lokinni viðgerð og endurnýjun fara tækin í lokaprófanir þar sem bæði virkni og útlit eru staðfest.  
  • Að því loknu fer fram gæðaskoðun og í vandaðar pakkningar. ​
  • Að endingu eru tækin fullbúin til afhendingar eða sendingar.

HP Certified Refurbished PC búnaður skilar marktækum sparnaði án þess að fórna gæðum, afköstum eða öryggi.

HP EliteBook 840 er vönduð og öflug fartölva úr atvinnulínu HP sem hentar einstaklega vel fyrir skrifstofuvinnu, fjarnám og daglega notkun. Þessi endurnýjaða (refurbished) útgáfa hefur verið yfirfarin og prófuð til að tryggja fulla virkni, sem gerir hana að hagkvæmum og áreiðanlegum valkosti fyrir þá sem vilja góða vél á betra verði.

Hönnun vélarinnar er stílhrein og fagleg, með léttu en sterku ytra byrði sem gerir hana þægilega hvort sem er á skrifstofu eða á ferðinni. EliteBook línan er þekkt fyrir gæði, öryggi og áreiðanleika, sem gerir þessa tölvu að góðum vinnufélaga til lengri tíma.

Vélin býður upp á góð afköst fyrir helstu daglegu verkefni eins og tölvupóst, vefnotkun, Microsoft Office, Teams og önnur skrifstofuforrit. Skjárinn er skýr og þægilegur til lengri vinnu og lyklaborðið hannað með notendaupplifun í huga.

Með því að velja endurnýjaða tölvu ertu ekki aðeins að spara kostnað heldur einnig að leggja þitt af mörkum til umhverfisins með því að lengja líftíma rafeindabúnaðar og draga úr sóun.

1 árs ábyrgð

Með því að smella á 'Samþykkja allt' samþykkir þú að við megum safna upplýsingum um þig í ýmsum tilgangi, þar á meðal: Tölfræði, Virkni og Markaðssetning