
HP S5 Pro 524pf 24" FHD skjár
9D9L6UT
HP Series 5 Pro 23,8” FHD skjárinn sameinar skýra mynd, þægilega stillingu og stílhreina hönnun fyrir nútímalegt vinnuumhverfi.
m/VSK
Eiginleikar
| Skjástærð | 60.5 cm (23.8") |
| Skjáupplausn | 1920 x 1080 pixels |
| Upprunalegt myndhlutfall | 16:9 |
| Skjátækni | LCD |
| Snertiskjár | Nei |
| NVIDIA G-SYNC | Nei |
| AMD FreeSync | Nei |
| Innbyggðir hátalarar | Nei |
| Innbyggð myndavél | Nei |
| Markaðsstaðsetning | Fyrirtæki |
| Litur vöru | Svartur |
| Innbyggð USB miðstöð | Já |
| VESA festing | Já |
Vörulýsing
23,8" skjárinn er með 1920 x 1080 FHD upplausn sem skilar skörpum smáatriðum og tærri mynd. IPS tækni tryggir stöðuga liti og góða mynd frá víðum 178° sjónarhornum, bæði lárétt og lóðrétt.
100 Hz endurnýjunartíðni gerir hreyfingar mýkri og myndina skýrari, hvort sem unnið er í skjölum, vafrað eða horft á efni. 1500:1 birtuskil, 350 nits birta og 100% sRGB litasvið hjálpa til við að birta liti, skugga og ljósbrigði með nákvæmni. HP Progressive White Balance stuðlar að samræmdum hvítpunkti milli skjáa.
Þriggja hliða micro-edge hönnun nýtir skjáflötinn vel og hentar sérstaklega vel í tvískjáauppsetningar. Tengimöguleikar eru fjölbreyttir með HDMI 1.4, DisplayPort 1.2, USB-B upstream og fjórum USB-A 3.2 tengjum sem auðvelda tengingu við jaðartæki.
Skjárinn býður upp á fjórhliða stillingu, þar sem hægt er að hækka og lækka hann, halla, snúa og nota pivot-stillingu. HP Eye Ease dregur úr bláu ljósi án þess að hafa áhrif á litanákvæmni eða gefa myndinni gulan blæ. Í HP Display Center er hægt að aðlaga stillingar, skipta skjáflötum og nýta Ergonomic Setup Guide til að finna þægilega vinnustöðu.
Skjárinn er Works With Chromebook Certified og er hannaður til að virka vel með Chromebook og öðrum Chrome OS tækjum. Hann uppfyllir einnig ENERGY STAR og EPEAT Gold kröfur um orkunýtni. Í framleiðslunni er notað að minnsta kosti 90% endurunnið plast og standurinn inniheldur 90% endurunnið ál.